Loftslagsmót - Hvernig virkar það?
Loftslagsmótið er vettvangur fyrir aðila og fyrirtæki til að hittast á snörpum fundum til að ræða umhverfis- og loftslagstengdar lausnir fyrir verkefni og rekstur fyrirtækja. Hver fundur er 15 mínútur og fara fundirnir fram milli kl. 9-12.
Markmiðið er að hvetja fyrirtæki til dáða og stuðla að bættum, jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja, til þess að draga úr losun.
1) Skráning
- Skráning fer fram með því að smella á græna takkann á forsíðunni "Register now"
2) Skrá prófíl þinn og vöru (Product) eða verkefni/áskorun (Request)
P
- Skráðu upplýsingarnar um þig og þitt fyrirtæki eins vel og þú getur.
- Þegar þú hefur stofnað aðgang færðu upp síðuna þína. AHT að neðst á miðri síðunni þinni þarftu að skrá undir Marketplace Opperortunities - þú skráir í:
- Product ef þú ert með vöru eða þjónustu í boði eða til þróunar.
- Request ef þú leitar að lausn hvort sem er ákveðinni vöru/þjónustu/ráðgjöf eða ef þú ert með áskorun sem þú athugaa hvort annað fyrirtæki hefur hugsanlega lausn á, eða getur þróað í samvinnu við þitt fyrirtæki.
3) Skoða þátttakendur (Participants) og verkefni (Marketplace)
- Skoðaðu áhugaverð fyrirtæki/stofnanir og vörur/verkefni. Smelltu á til að sjá nánar viðkomandi.
4) Senda og svara fundarbeiðnum
- Skoðaðu reglulega þátttakendur (og nýja) og verkefni þeirra, og senda fundarbeiðni á þá aðila sem þú vilt funda með á mótinu. Gott er að skrá hvers vegna þú vilt hitta viðkomandi en það eykur líkur á að fundurinn verði samþykktur
- Samþykktar fundarbeiðnir koma sjálfkrafa inn á tímaáætlun þína.
- TIP: Sækið "b2match" snjallforritið fyrir farsíma til að halda utan um 1.1 fundina þína í símanum!
- Yfirlit yfir fundina þína og fundarbeiðnir finnurðu undir "Meetings" (efst á gráu stikunni)
- Fundarbeiðnum verður að svara, að öðru leyti verður ekkert af fundum.
Reglur varðandi bókanir
- Allir skráðir aðilar geta óskað eftir fundum með öllum öðrum skráðum aðilum.
- Samþykkja þarf fundi til að þeir komi inn í dagskrá þína yfir fundi.
5) Loftslagsmótið og áminning
- Daginn fyrir Loftslagsmótið færðu tölvupóst með yfirliti yfir fundina þína sem munu eiga sér stað 3.mars.
- Þú sækir síðan dagskrána þína í "b2match" snjallforritinu sem heldur utan um 1.1 fundina þína í símanum!